Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 37. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 37  —  37. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum.

Flm.: Katrín Júlíusdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Árni Johnsen,
Ásta R. Jóhannesdóttir, Björk Guðjónsdóttir, Guðbjartur Hannesson,
Kjartan Ólafsson.


1. gr.

    Við 1. mgr. 20. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þó er þeim sem hafa leyfi til sölu tóbaks í smásölu skv. 11. mgr. 8. gr. laga um tóbaksvarnir heimilt að selja nikótínlyf sem ekki eru lyfseðilsskyld. Um sölu á nikótínlyfjum samkvæmt þessari grein gilda ákvæði laga um tóbaksvarnir eftir því sem við á.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.



Greinargerð.


    Frumvarp þetta var lagt fram á 132. og 133. löggjafarþingi en komst þá ekki á dagskrá og er það nú lagt fram að nýju. Með frumvarpi þessu er gert ráð fyrir að þeir sem selja tóbak í smásölu fái heimild til sölu nikótínlyfja sem ekki eru lyfseðilsskyld. Þá er lagt til að önnur ákvæði laga um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, gildi um sölu nikótínlyfja, eftir því sem við á. Flutningsmenn vilja í þessu sambandi sérstaklega nefna 1. mgr. 8. gr. laganna þar sem kveðið er á um að hvorki megi selja né afhenda tóbak einstaklingi yngri en 18 ára.
    Markmiðið með frumvarpinu er að fjölga sölustöðum nikótínlyfja þannig að þau verði valkostur í stað tóbaks þar sem það er selt. Nikótínlyf sem seld eru í lausasölu eru í formi tyggigúmmís, plásturs, innsogs- og nefúðalyfs. Frumvarpið tekur einungis til nikótínlyfja sem ekki eru lyfseðilsskyld. Hins vegar eru til nikótíntöflur sem einungis fást gegn framvísun lyfseðils og verður ekki gerð breyting á því með þessu frumvarpi. Frumvarpið felur í sér að unnt verður að kaupa nikótínlyf m.a. á bensínstöðvum, á veitingastöðum, í stórmörkuðum og í söluturnum. Verði frumvarpið að lögum má búast við að samkeppni aukist og að verð slíkra lyfja lækki.
    Ef litið er til annarra Norðurlanda þá var í Svíþjóð samþykkt að fara sambærilega leið og heimila sölu nikótínlyfja við hlið tóbaks. Í skýrslu danska lyfjaeftirlitsins sem kom út í september 2005 er fjallað um reynslu af frjálsari verslun með lyf. Í skýrslunni kemur fram að nikótínlyf geti hjálpað reykingamönnum að hætta að reykja og því megi færa rök fyrir því að slík lyf skuli vera jafnaðgengileg og tóbak. Þó er bent á það í skýrslunni að nikótín sé það efni í tóbakinu sem sé ávanabindandi. Í skýrslunni kemur hins vegar fram að rannsóknir sýni fram á að um 10% fyrrverandi reykingamanna sem notað hafa nikótínlyf í því skyni að hætta reykingum noti slík lyf ekki lengur en í eitt ár. Þó að Danir hafi heimilað frjálsa verslun með fleiri lyf sem ekki eru lyfseðilsskyld er það ekki ætlun flutningsmanna að stíga slík skref.
    Flutningsmenn telja að með því að auðvelda aðgengi reykingamanna að nikótínlyfjum sjái fleiri lyfin sem valkost auk þess sem aukið aðgengi sé mikilvægur stuðningur við þá sem standa í stríði við tóbakið. Því telja flutningsmenn að með samþykkt þessa frumvarps verði stigið mikilvægt skref í tóbaksvörnum.