Fundargerð 137. þingi, 2. fundi, boðaður 2009-05-18 19:50, stóð 19:50:31 til 22:01:42 gert 19 9:21
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

mánudaginn 18. maí,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:

Fjarvistarleyfi:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Borgarahreyfingin -- þjóðin á þing.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra í annarri og Sigmundur Ernir Rúnarsson, 7. þingmaður Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Bjarni Benediktsson, 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Ásbjörn Óttarsson, 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 3. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, 9. þingmaður Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Guðmundur Steingrímsson, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Borgarahreyfinguna -- þjóðin á þing töluðu í fyrstu umferð Þór Saari, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri Birgitta Jónsdóttir, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis.

[19:50]

Hlusta

Þingmálaskrá:

[22:01]

Útbýting þingskjala:

Fundi slitið kl. 22:01.

---------------