Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 245. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 281  —  245. mál.




Fyrirspurn



til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um sameiningu sveitarfélaga vegna fjárhagsstöðu.

Frá Siv Friðleifsdóttur.



    Verði sveitarfélög sameinuð vegna slakrar fjárhagsstöðu að frumkvæði ráðherra, sbr. 79. gr. sveitarstjórnarlaga, er þá tryggt að jafnræðis verði gætt gagnvart þeim sveitarfélögum sem þannig verða sameinuð öðrum sveitarfélögum?


Skriflegt svar óskast.