2. FUNDUR
mánudaginn 3. okt.,
kl. 7.50 síðdegis.
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað mánudaginn 3. október 2011, kl. 19.50. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Hreyfingin.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra í annarri og Magnús Orri Schram, 7. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Bjarni Benediktsson, 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Birgir Ármannsson, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og í þriðju umferð Þráinn Bertelsson, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður.
Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, 9. þingmaður Norðvesturkjördæmis.
Fyrir Hreyfinguna töluðu í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Þór Saari, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis.
Síðust í fyrstu umferð töluðu þingmenn utan flokka: Lilja Mósesdóttir, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og Guðmundur Steingrímsson, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis.
[22:11]
Fundi slitið kl. 22:12.
---------------