Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 609. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1279  —  609. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit



um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2012 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergþór Magnússon og Guðbjörgu Evu H. Baldursdóttur frá utanríkisráðuneyti og Sigurbjörgu Stellu Guðmundsdóttur frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti. Málið var sent efnahags- og viðskiptanefnd og henni gefinn kostur á að gefa álit sitt á tillögunni. Ekki bárust athugasemdir við málið.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 19/2012, frá 10. febrúar 2012, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/76/ESB frá 24. nóvember 2010 um breytingu á tilskipunum 2006/48/EB og 2006/49/EB að því er varðar eiginfjárkröfur vegna veltubókar og endurverðbréfana og eftirlit með starfskjarastefnu. Sex mánaða frestur, samkvæmt EES-samningnum, til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 10. ágúst 2012. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála frá 1. október 2010.
    Markmið tilskipunarinnar er að auka eftirlit með starfskjarastefnu fjármálafyrirtækja, m.a. í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að starfsmenn séu verðlaunaðir fyrir að taka mikla áhættu í starfi sínu. Þá er gerð krafa um að lánastofnanir setji sér starfskjarastefnu sem þjóni langtímamarkmiðum þeirra. Eftirlitsaðilum eru veittar heimildir til að beita fjármálafyrirtæki sektum fari þau ekki að nýjum reglum varðandi starfskjarastefnu.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og mun fyrirhugað frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra á 141. löggjafarþingi um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, fjalla um það efni. Efni tilskipunarinnar fellur að áherslum Alþingis og stjórnvalda á undanförnum missirum um að auka stöðugleika og draga úr áhættusækni í fjármálakerfinu. Eftir framlagningu mun frumvarpið að líkindum koma til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd.
    Hvorki er gert ráð fyrir að væntanlegar lagabreytingar hafi teljandi kostnað í för með sér né stjórnsýslulegar afleiðingar hér á landi.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 8. maí 2012.



Árni Þór Sigurðsson,


form.


Árni Páll Árnason,


frsm.


Bjarni Benediktsson.



Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.


Gunnar Bragi Sveinsson.


Helgi Hjörvar.



Mörður Árnason.


Ragnheiður E. Árnadóttir.


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.