Framkvæmd þingsályktunarinnar
Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 601. máls.
Þingskjal 1302 — 601. mál.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2012 sem gerðir voru í London 14. október 2011:
1. Sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk- íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2012.
2. Samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands á árinu 2012.
3. Samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2012.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Nr. 20/140.
Þingskjal 1302 — 601. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2012.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2012 sem gerðir voru í London 14. október 2011:
1. Sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk- íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2012.
2. Samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands á árinu 2012.
3. Samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2012.
Samþykkt á Alþingi 11. maí 2012.