Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 31. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 31 — 31. mál.
1. Hversu mörgum fangarýmum þyrfti að bæta við til að fullnægja núverandi þörf fyrir fangarými í landinu?
2. Hversu mörg rými bætast við með tilkomu nýs fangelsis á Hólmsheiði, hversu mikið er áætlað að biðlisti eftir afplánun styttist við það og í hversu mörg ár er talið að fangelsið muni fullnægja þörf fyrir fangarými?
3. Hversu mörg fangarými munu glatast þegar lokað verður þeim fangelsum á höfuðborgarsvæðinu sem ekki uppfylla skilyrði um aðbúnað?
4. Hefur samþykkt skipulag vegna fangelsis á Hólmsheiði verið birt í Stjórnartíðindum? Ef svo er, hvenær?
5. Er gert ráð fyrir að hægt verði að stækka fangelsið á Hólmsheiði síðar?
6. Verður þörf á að hafa steyptan vegg umhverfis fangelsið og hvað mundi hann kosta?
7. Hve mikill tími er áætlað að sparist við að flytja fanga frá Reykjavík í fangelsi á Hólmsheiði fremur en í fangelsið á Litla-Hrauni?
8. Hversu mörgum gæsluvarðhaldsrýmum þarf að bæta við til að fullnægja núverandi þörf fyrir gæsluvarðhaldsrými í landinu?
9. Hefur verið kannaður sá möguleiki að stækka lögreglustöðina við Hverfisgötu í Reykjavík og útbúa gæsluvarðhaldsfangelsi í húsnæði hennar? Ef svo er, hvað mundi slík framkvæmd kosta og hversu mörg gætu gæsluvarðhaldsrýmin orðið?
Skriflegt svar óskast.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 31 — 31. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um fangelsismál.
Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.