Ferill 489. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 842 — 489. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um launagreiðslur til lækna.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
1. Hversu margir læknar standa á bak við þau 569 ársverk sem tilgreind eru í samantekt fjármála- og efnahagsráðuneytisins frá 19. desember 2014 um launagreiðslur til lækna?
2. Hvert er hlutfall grunnlauna af meðalheildartekjum lækna á Landspítala?
3. Hver er meðalvaktabyrði lækna umfram átta tíma vinnudag?
Skriflegt svar óskast.