Ferill 308. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 356 — 308. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um ráðstöfun fjár til löggæslumála.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
Hvernig var því fé varið sem veitt var til löggæslumála í fjárlögum fyrir árið 2014, sbr. athugasemdir við lið 06-390 í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014, einkum um eflingu almennrar löggæslu?
Óskað er eftir að í svarinu komi fram eftirfylgni við tillögur þingmannanefndar um skiptingu viðbótarfjármagns til löggæslu 2014, úthlutun til einstakra lögregluembætta og ráðstöfun þess hjá embættunum og heildarupphæð fjárins.
Skriflegt svar óskast.