Ferill 398. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 707 — 398. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um málefni aldraðra, lögum um almannatryggingar
og lögum um sjúkratryggingar (samningar sjúkratryggingastofnunar
við stofnanir fyrir aldraða).
(Eftir 2. umræðu, 19. desember.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum.
1. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 2. tölul. 1. mgr. er heimilt að samþykkja dvöl einstaklinga sem eru yngri en 67 ára á hjúkrunarheimilum og í hjúkrunarrýmum stofnana fyrir aldraða enda hafi þeir verið metnir í þörf fyrir dvöl skv. 15. gr. Um greiðsluþátttöku þeirra fer samkvæmt lögum þessum.
2. gr.
3. gr.
a. 2. og 3. málsl. 1. mgr. orðast svo: Hafi heimilismaður engar tekjur, sbr. 26. gr., skal sjúkratryggingastofnun greiða dvalarheimilinu dvalarframlag til greiðslu dvalarkostnaðar hans á stofnuninni. Dvalarframlagið skal nema hámarki dvalarkostnaðar sem um er samið skv. IV. kafla laga um sjúkratryggingar, sbr. þó 22. gr. laga þessara.
b. Í stað orðanna ,,það er ákveðið af ráðherra hverju sinni, sbr. 6. mgr. 48. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar“ í 3. mgr. kemur: samið hefur verið um skv. IV. kafla laga um sjúkratryggingar.
4. gr.
a. Í stað „34.659 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. og 1. tölul. 2. mgr. kemur: 74.696 kr.
b. Í stað orðanna ,,þau eru ákveðin af ráðherra, sbr. 6. mgr. 48. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, og 3. mgr. 23. gr. laga þessara“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: samið hefur verið um skv. IV. kafla laga um sjúkratryggingar, sbr. þó 24. gr. laga þessara.
c. 2. tölul. 2. mgr. orðast svo: Ef tekjur heimilismanns á dvalar- eða hjúkrunarheimili ná ekki 74.696 kr. á mánuði greiðir sjúkratryggingastofnun dvalarkostnað hans.
5. gr.
a. Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ tvívegis í 1. mgr. kemur: sjúkratryggingastofnun.
b. Orðin „sbr. 3. mgr.“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.
c. 3. mgr. fellur brott.
6. gr.
Ráðherra ákveður með reglugerð hámark greiðsluþátttöku heimilismanns í dvalarkostnaði á stofnun, óháð því hvort stofnunin er á föstum fjárlögum eða ekki. Greiðsluþátttaka skal þó aldrei nema hærri fjárhæð en nemur umsömdum dvalarkostnaði. Lög um sjúkratryggingar gilda þegar ekki liggja fyrir samningar um þjónustu í rýmum fyrir aldraða.
7. gr.
a. Í stað orðanna „og greiðir“ í 3. mgr. kemur: en sjúkratryggingastofnun greiðir.
b. Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ og „Tryggingastofnun“ í 1. málsl. 8. mgr. kemur: sjúkratryggingastofnun.
c. Í stað orðanna „Tryggingastofnun ríkisins“ í 11. mgr. kemur: sjúkratryggingastofnun.
II. KAFLI
Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum.
8. gr.
9. gr.
a. 6. mgr. fellur brott.
b. Orðin „og 6.“ í 7. mgr. falla brott.
III. KAFLI
Breyting á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum.
10. gr.
Þjónusta í rýmum fyrir aldraða.
11. gr.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
15. gr.