Ferill 485. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 677  —  485. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis- og auðlindaráðherra um landvörslu.

Frá Orra Páli Jóhannssyni.


     1.      Hversu margar voru landvörsluvikur á árunum 2014–2016?
     2.      Hver var fjöldi heilsársstöðugilda við þær stofnanir hins opinbera sem sinna landvörslu á árunum 2014–2016?
     3.      Hefur landvarsla haldist í hendur við aukinn fjölda ferðamanna síðastliðin þrjú ár?
     4.      Hvernig er þörf á landvörslu metin hjá ráðuneytinu, stofnunum þess og sveitarfélögum?
     5.      Hversu mikið fjármagn var lagt í landvörslu hvert ár 2014–2016, skipt eftir stofnunum, friðlýstum svæðum og meginstarfsstöðvum þjóðgarða?


Skriflegt svar óskast.