Ferill 204. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 287 — 204. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um dómsmál hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Frá Alex B. Stefánssyni.
1. Hversu mörg dómsmál hefur Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) höfðað á síðustu þremur árum, sundurliðað eftir árum?
2. Hversu mörgum dómsmálum hefur LÍN tapað á fyrrgreindu tímabili, hversu mörg mál hafa unnist og hversu mörgum málum hefur lokið með dómsátt, innan hvers dómstigs?
3. Hver er samanlagður dæmdur málskostnaður á LÍN síðustu þrjú ár?
4. Hver er heildarlögfræðikostnaður LÍN vegna málshöfðana síðustu þrjú ár?
Skriflegt svar óskast.