Ferill 643. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1132  —  643. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um veitingu ríkisfangs.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


    Hversu mörgum erlendum ríkisborgurum eða ríkisfangslausum mönnum hefur verið veitt íslenskt ríkisfang undanfarin tíu ár? Svar óskast sundurliðað eftir árum og því hversu margir voru 18 ára eða eldri þegar þeim var veitt íslenskt ríkisfang.


Skriflegt svar óskast.