Ferill 662. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1077  —  662. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um stuðning við unglingalandsmót UMFÍ.

Frá Ásgerði K. Gylfadóttur.


     1.      Með hvaða hætti styður ráðuneyti íþróttamála sveitarfélög og ungmennafélög sem taka að sér unglingalandsmót UMFÍ sem haldið er um verslunarmannahelgi ár hvert?
     2.      Er ákveðin lágmarksupphæð ætluð til unglingalandsmóts UMFÍ ár hvert?
     3.      Hvernig hefur þróunin verið sl. 20 ár í styrkveitingum vegna unglingalandsmóts UMFÍ? Svar óskast sundurliðað eftir árum, sveitarfélögum og ungmennafélögum.


Skriflegt svar óskast.