Ferill 718. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1146 — 718. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um sifjadeild sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
Frá Helgu Völu Helgadóttur.
1. Hyggst ráðherra bregðast við þeirri slæmu stöðu sem verið hefur um langt árabil á sifjadeild sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna manneklu og mikils málafjölda?
2. Hefur ráðherra áform um að tryggja meira fé til embættisins svo hægt sé að hraða málsmeðferð þeirra mála sem undir sifjadeild heyra?