Ferill 859. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1360 — 859. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um dvalar- eða hjúkrunarrými fyrir aldraða.
Flm.: Inga Sæland, Guðmundur Ingi Kristinsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga sem kveði á um eftirfarandi:
1. Ríki og sveitarfélögum verði skylt að útvega öldruðum, sem hafa gengist undir færni- og heilsumat, dvalar- eða hjúkrunarrými eigi síðar en 80 dögum eftir að niðurstöður mats um að viðkomandi eigi rétt á slíku úrræði liggja fyrir.
2. Færni- og heilsumat skuli gefið út eigi síðar en 10 dögum eftir að umsókn um það berst.
3. Öldruðum einstaklingum, sem dvalist hafa lengur en 10 daga á sjúkrahúsi án sérstakrar meðferðar, verði útvegað dvalar- eða hjúkrunarrými.
4. Maki eða sambúðarmaki heimilismanns á stofnun fyrir aldraða skuli, án tillits til þess hvort hann hafi gengist undir færni- og heilsumat, eiga þess kost að dvelja á stofnun ásamt heimilismanni að því gefnu að hann taki þátt í dvalarkostnaði. Ef heimilismaður fellur frá skuli maki eða sambúðarmaki hans eiga þess kost að dvelja áfram á viðkomandi stofnun í allt að átta vikur frá dánardægri heimilismanns. Á þeim tíma skuli meta hvort forsendur eru fyrir áframhaldandi dvöl á stofnuninni. Dvalarréttur þar falli niður nema niðurstaða færni- og heilsumats skv. 15. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999, verði sú að forsendur séu fyrir áframhaldandi búsetu. Viðkomandi öðlist þá sjálfstæðan rétt sem heimilismaður á stofnun fyrir aldraða.
Greinargerð.
Vestfirðir hafa hæsta hlutfallið af íbúum á biðlista, en það hefur hækkað úr 10,5 einstaklingum í 16,2 af hverjum 1.000 íbúum sem eru eldri en 67 ára. Á Norðurlandi er næsthæsta hlutfallið af íbúum á biðlista og hefur það aukist um tæplega helming síðan 2014 og er nú 14,1 einstaklingur af hverjum 1.000 íbúum sem eru eldri en 67 ára. Á Austurlandi hefur einstaklingum á biðlista fækkað mikið síðan 2014. Samt er landshlutinn í þriðja sæti á landsvísu því að þar eru um 12,7 einstaklingar af hverjum 1.000 íbúum sem eru eldri en 67 ára á biðlista eftir rými. Sú tala var 20,2 árið 2014. Á höfuðborgarsvæðinu hefur einstaklingum á biðlista eftir hjúkrunarrými fjölgað frá árinu 2014 og eru þeir nú 8,9 af hverjum 1.000 íbúum eldri en 67 ára miðað við 4,9 árið 2014. Á Suðurnesjum eru svipaðar tölur og á höfuðborgarsvæðinu þó að mikið hafi dregið úr lengd biðlista þar árið 2017 við opnun nýs hjúkrunarheimilis, en nú eru biðlistar þar farnir að lengjast aftur. Á Vesturlandi voru hvað fæstir á biðlista árið 2014, eða 4,9 af hverjum 1.000 íbúum eldri en 67 ára. Biðlistar þar eru þeir næststystu á landinu eða 6,5 einstaklingar af 1.000 íbúum eldri en 67 ára. Best er ástandið á Suðurlandi, 3,1 af 1.000 íbúum, en var 5,9 árið 2014.
Fjöldi þeirra sem létust á biðlista eftir hjúkrunarrými áður en til úthlutunar kom var 114 árið 2014, 141 árið 2015, 178 árið 2016 og 183 árið 2017. Árið 2017 voru almenn hjúkrunarrými á hjúkrunar- og dvalarheimilum landsins 2.526 en dvalarrými 281. Árið 2007 voru hjúkrunarrými tæplega 2.700 en dvalarrými ríflega 700. Fækkaði því hjúkrunarrýmum um rúmlega 6% en dvalarrýmum um nálega 60% milli áranna 2007 og 2017.
Sveitarfélögin sjá um húsnæði fyrir hjúkrunar- og dagvistunarúrræði aldraðra en ríkið úthlutar fjármagni með hverjum og einum þeirra. Með þessu eru sveitarfélögin háð úthlutunum hjúkrunar- og dvalarrýma frá ríkinu og þannig strandar málið á því að sveitarfélög fá oft ekki, þrátt fyrir ítrekaðar óskir, fjármagn til úthlutunar hjúkrunar- og dagvistunarrýma.
Eldri borgarar sem dvelja á stofnun fyrir aldraða eru oft þvingaðir til sambúðarslita þar sem þeir eiga ekki kost á að vera samvistum við maka eða sambúðarmaka sinn. Það er mannréttindamál að tryggja að íbúar sem eiga heima á öldrunarstofnunum geti verið áfram samvistum við maka sinn. Markmið tillögunnar er að gera fólki mögulegt að búa áfram með maka sínum sem hefur af heilsufarsástæðum þurft að flytjast á heimili sem krefst færni- og heilsumats til búsetu. Því yrði ekki lengur áskilið að heilbrigður eða heilbrigðari maki byggi annars staðar en hinn veikari. Þannig yrði komið í veg fyrir þvinguð sambúðarslit.