Ferill 207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 220 — 207. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um utanlandsferðir á vegum ráðuneytisins.
Frá Þorsteini Sæmundssyni.
1. Hversu margar utanlandsferðir fóru árin 2016–2019:
a. ráðherra,
b. yfirstjórn,
c. almennir starfsmenn,
d. starfsmenn stofnana ráðuneytisins, sundurliðað eftir stofnunum?
2. Voru ferðirnar kolefnisjafnaðar?
3. Er til fjarfundabúnaður í ráðuneytinu eða í stofnunum sem heyra undir ráðuneytið og ef svo er, hvar?
4. Hversu margir fundir voru haldnir með fjarfundabúnaði árin 2016–2019 með aðilum í útlöndum?
Skriflegt svar óskast.