Ferill 732. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1223 — 732. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um dóma Landsréttar í vændiskaupamálum.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
Hver var fjöldi dóma Landsréttar í málum er varða vændiskaup árin 2018–2020, sundurliðað eftir því hvort:
a. fyrri dómur var staðfestur,
b. fyrri dómi var breytt, og þá hvort það var til þyngri eða vægari refsingar,
c. fyrri dómi var snúið, og þá hvort sakfellingu var snúið í sýknu eða sýknu snúið í sakfellingu,
d. um ómerkingu, frávísun eða niðurfellingu var að ræða?
Svör óskast einnig sundurliðuð eftir árum og þeim lagagreinum sem brot varðar í dómunum.
Skriflegt svar óskast.