Ferill 522. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 638 — 522. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um fjölgun starfsfólks og embættismanna.
Frá Helgu Völu Helgadóttur.
1. Hversu margt starfsfólk hefur verið ráðið til starfa hjá utanríkisráðuneyti frá því að ný ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum 28. nóvember 2021? Svar óskast sundurliðað eftir því:
a. hvort um er að ræða skipun í embætti eða ráðningu,
b. hvort um er að ræða tímabundnar ráðningar/skipanir eða ótímabundnar,
c. hversu mörg ný störf er um að ræða.
2. Hversu margar stöður hafa verið auglýstar frá því í nóvember 2021? Svar óskast sundurliðað eftir því hvort um er að ræða skipun í embætti eða ráðningu.
3. Hver var fjöldi stöðugilda hjá utanríkisráðuneyti við skipan nýrrar ríkisstjórnar í nóvember 2017 samanborið við fjölda stöðugilda í september 2022? Hafi orðið breyting á málefnasviði ráðuneytisins á þessum tíma er óskað eftir að tilgreind sé breyting á starfsmannafjölda með tilliti til þess.
4. Hver er áætlaður viðbótarkostnaður vegna fjölgunar starfsfólks hjá utanríkisráðuneyti á kjörtímabilinu?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.