Ferill 904. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1416 — 904. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um tilmæli nefndar um eftirlit með lögreglu.
Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.
Hefur ríkislögreglustjóri brugðist við tilmælum nefndar um eftirlit með lögreglu sem fram koma í áliti nr. 44/2022 og m.a. var fjallað um í Stundinni 25. nóvember 2022? Ef svo er ekki, hvenær verður það gert og með hvaða hætti?
Skriflegt svar óskast.