Ferill 1150. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1940 — 1150. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um starfsmenn skatt- og tollyfirvalda.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hve margir störfuðu hjá embætti tollstjóra á tímabilinu 2016–2019? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
2. Hve margir störfuðu hjá embætti ríkisskattstjóra á tímabilinu 2016–2019? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
3. Hve margir störfuðu hjá sameinuðu embætti Skattsins á tímabilinu 2020–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Skriflegt svar óskast.