Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 223 — 220. mál.
Fyrirspurn
til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um undanþágu frá staðnámi.
Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.
1. Hvaða háskólar hafa sett verklagsreglur um undanþágur frá staðnámi í greinum sem ekki eru í boði í fjarnámi vegna sérstakra aðstæðna einstaklinga, svo sem búsetu, starfs, íþróttaiðkunar eða fjölskylduaðstæðna?
2. Hversu margir, ef einhverjir, nemendur hafa nýtt slíka undanþágu? Svar óskast sundurliðað eftir háskólum.
Skriflegt svar óskast.