Ferill 231. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 288  —  231. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Evu Sjöfn Helgadóttur um úrræði fyrir börn með alvarlegan hegðunarvanda eða geðvanda.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hefur ráðuneytið unnið að því að koma á fót úrræði á vegum heilbrigðisyfirvalda þar sem börn með alvarlegan hegðunarvanda eða geðvanda geta hlotið þjónustu?

    Barna- og unglingageðdeild Landspítala veitir börnum upp að 18 ára aldri geðheilbrigðisþjónustu vegna alvarlegs geðvanda. Þá starfrækir Sjúkrahúsið á Akureyri Barna- og unglingageðteymi (BUG) sem veitir börnum upp að 18 ára aldri geðheilbrigðisþjónustu.
    Heilbrigðisráðuneyti átti fulltrúa í stýrihópi um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem skipaður var af mennta- og barnamálaráðherra. Stýrihópurinn skilaði skýrslu til mennta- og barnamálaráðherra 30. ágúst 2023.