Ferill 292. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 296 — 292. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um alvarleg atvik tengd fæðingum.
Frá Gísla Rafni Ólafssyni.
1. Hversu margar mæður á hverju ári síðastliðin 10 ár á Íslandi hafa látist eftir barnsburð? Hvernig er fjöldinn samanborið við annars staðar á Norðurlöndum?
2. Hversu margar mæður á hverju ári síðastliðin 10 ár á Íslandi hafa verið lagðar inn vegna mikils blóðmissis við fæðingu? Hvernig er fjöldinn samanborið við annars staðar á Norðurlöndum?
3. Hver er tíðni burðarmálsdauða á hverju ári síðastliðin 10 ár á Íslandi sundurliðað eftir sjúkrastofnunum? Hvernig er tíðnin samanborið við annars staðar á Norðurlöndum?
4. Hversu margar mæður á hverju ári síðastliðin 10 ár á Íslandi hafa hlotið örorku eftir barnsburð? Hvernig er fjöldinn samanborið við annars staðar á Norðurlöndum?
Skriflegt svar óskast.