Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 584  —  428. mál.




Svar


matvælaráðherra við fyrirspurn frá Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur um framkvæmd matvælastefnu.


    Fyrirspurnin orðast svo:
     Er fyrsta aðgerðaáætlun til fimm ára samkvæmt matvælastefnu til ársins 2040 tilbúin? Ef ekki, hvenær er hennar að vænta?
    
    Unnið er að aðgerðaáætlun matvælastefnu og reiknað er með að drögin verði kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í upphafi árs 2024. Gert er ráð fyrir að aðgerðaáætlunin verði gefin út í kjölfarið og kynnt þinginu. Aðgerðaáætlunin verður til ársins 2040 og verður endurmetin á fimm ára fresti.