Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 701 — 203. mál.
Svar
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Gísla Rafni Ólafssyni um námslán og veikindi.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margir sóttu um námslán árin 2010–2022, sundurliðað eftir árum?
2. Hversu margir fengu samþykkt námslán árin 2010–2022, sundurliðað eftir árum?
3. Hversu margir á árunum 2010–2022 fengu ekki greitt fullt námslán vegna þess að fullur námsárangur náðist ekki, sundurliðað eftir árum?
4. Hversu margir sóttu um takmarkaða námsframvindu vegna veikinda árin 2010–2022, sundurliðað eftir árum?
5. Hversu margir fengu samþykkta takmarkaða námsframvindu vegna veikinda árin 2010– 2022, sundurliðað eftir árum?
Skólaárið | |||||||||||||
Svar við spurningu: | 2010– 2011 | 2011– 2012 | 2012– 2013 | 2013– 2014 | 2014– 2015 | 2015– 2016 | 2016– 2017* | 2017– 2018 | 2018– 2019 | 2019– 2020 | 2020– 2021 | 2021– 2022 | |
Fjöldi: | |||||||||||||
1 | umsókna um námslán | 14.756 | 14.765 | 14.354 | 13.645 | 12.158 | 10.545 | 8.329 | 7.007 | 6.163 | 6.006 | 7.015 | 6.268 |
2 | á námslánum | 12.601 | 12.603 | 12.236 | 11.768 | 10.246 | 8.632 | 7.012 | 5.859 | 5.142 | 4.975 | 6.022 | 5.772 |
3 | þar sem fullur námsárangur náðist ekki | 6.016 | 5.809 | 5.386 | 5.248 | 4.143 | 452 | 3.570 | 2.936 | 2.522 | 2.328 | 3.047 | 2.812 |
Hlutfall lánþega ekki með fullan námsárangur. | 43,49% | 42,09% | 40,82% | 36,44% | 46,23% | 45,72% | 44,68% | 42,92% | 43,53% | 45,11% | 46,70% | 43,66% | |
4 | sem sótti um undanþágu | ** | ** | ** | ** | 196 | 128 | 102 | 82 | 65 | 133 | 190 | 135 |
5 | sem fékk samþykkta takmarkaða námsframvindu vegna veikinda | ** | ** | ** | ** | 181 | 117 | 98 | 79 | 55 | 129 | 178 | 125 |
*Námsárið 2015–2016 var tekið upp nýtt tölvukerfi hjá sjóðnum. Tölur um fjölda lánþega geta því verið vanáætlaðar hér. | |||||||||||||
**Ekki er til sundurliðun á undanþágum fyrir þessi ár. |