Ferill 975. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1438 — 975. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um fæðingarorlofsgreiðslur.
Frá Óla Birni Kárasyni.
1. Hvaða áhrif hefði það haft á ríkissjóð ef fæðingarorlofsgreiðslur á árunum 2020–2023 hefðu ekki myndað stofn til tekjuskatts, sundurliðað eftir árum?
2. Hvaða áhrif hefði það haft á tekjutengd stuðningsúrræði hins opinbera, t.d. barnabætur, húsnæðisbætur og vaxtabætur, sundurliðað eftir árum og stuðningsúrræðum?
Skriflegt svar óskast.