Ferill 737. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2067  —  737. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytinga á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta (starfslok óbyggðanefndar o.fl.).

Frá Bergþóri Ólasyni.


     1.      Á eftir 4. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                 Við 7. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                 Ákvæði 1. mgr. taka ekki til landsvæða utan strandlengju meginlandsins.
     2.      Við 5. gr. bætist nýr liður, a-liður, svohljóðandi: Orðin „sbr. þó 10. gr. a“ í 1. mgr. 10. gr. laganna falla brott.
     3.      6. gr. orðist svo:
                 10. gr. a laganna fellur brott.