Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 2078, 154. löggjafarþing 935. mál: Menntasjóður námsmanna (ábyrgðarmenn og námsstyrkir).
Lög nr. 89 4. júlí 2024.

Lög um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020 (ábyrgðarmenn, námsstyrkir).


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:
  1. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Uppfylli lánþegi ekki skilyrði um tryggan lánþega er heimilt að taka tillit til félagslegra aðstæðna lánþega sem skal útfæra nánar í úthlutunarreglum.
  2. 3. og 5. mgr. falla brott.
  3. Orðin „eða að þeirri fjárhæð sem ábyrgð hefur verið veitt fyrir skv. 3. mgr.“ í 4. mgr. falla brott.
  4. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Umsókn og samtímagreiðslur.


2. gr.

     Við 1. mgr. 14. gr. laganna bætast þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Hafi lánþegi lokið fyrsta ári í lánshæfu námi, í samræmi við það sem skipulag námsins gerir ráð fyrir, getur hann áunnið sér námsstyrk fyrir það nám, ákveði hann að skipta yfir í annað lánshæft nám, strax á næsta skólaári. Réttur til námsstyrksins er háður því að lánþegi ljúki síðara náminu í samræmi við það sem skipulag þess náms gerir ráð fyrir. Þessi réttur gildir aðeins einu sinni á þeim tíma sem lánþegi þiggur lán hjá Menntasjóði námsmanna.

3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 34. gr. laganna:
  1. 1. mgr. orðast svo:
  2.      Menntasjóði námsmanna er eingöngu heimilt að taka lán frá Endurlánum ríkissjóðs til að fjármagna lán til lánþega.
  3. 2. mgr. fellur brott.
  4. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
  5.      Ráðherra sem fer með fjárreiður ríkisins setur reglugerð um nánari útfærslu á fjármögnun Menntasjóðs.


4. gr.

     Ákvæði til bráðabirgða II í lögunum orðast svo:
     Ábyrgð ábyrgðarmanns á námslánum teknum í tíð eldri laga skal falla niður við gildistöku laga þessara. Ákvæðið nær til allra ábyrgða á skuldabréfum sjóðsins, hvort sem er vegna námslána, skuldabréfa vegna vanefnda lántaka, oflána eða af öðrum ástæðum.

5. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Stjórn Menntasjóðs námsmanna skal senda ráðherra uppfærða tillögu að breytingum á úthlutunarreglum sjóðsins vegna lagabreytinga sem varða afnám ábyrgðarmannakerfis lána hjá sjóðnum og heimildarákvæðis til handa sjóðnum um mat á tryggum lánþegum, sem taki gildi eigi síðar en 1. september 2024.

6. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 22. júní 2024.