Ferill 242. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 245  —  242. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um öryggiskröfur í jarðgöngum.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.


     1.      Er kröfum reglugerðar um öryggiskröfur fyrir jarðgöng, nr. 895/2021, fylgt eftir og þær uppfylltar, t.d. að því er varðar öryggi vegfarenda í jarðgöngum, m.a. vegna eldsvoða? Hvernig hefur eftirliti skv. 8. gr. reglugerðarinnar verið háttað?
     2.      Fer fram skráning á því hvort um er að ræða umferð þungaflutninga, farþegaflutninga eða olíuflutninga um Vestfjarðagöng?
     3.      Hvaða reglur gilda um olíuflutninga í jarðgöngum?
     4.      Er flóttaleið í súrefnisrými í Vestfjarðagöngum, sbr. Hvalfjarðargöng?
     5.      Hafa áhættumat og viðbragðsáætlanir í Vestfjarðagöngum við eldsvoða þar tekið mið af súrefnisskorti, flóttaleiðum og möguleikum viðbragðsaðila til björgunaraðgerða í einbreiðum hluta ganganna?
     6.      Eru klæðningar innan á gangaveggjum Vestfjarðaganga viðurkenndar í dag til notkunar hvað varðar bruna og eldsmat? Ef ekki, hvað vantar á svo að Vestfjarðagöng stæðust kröfur til sambærilegra ganga sem gerð eru í dag?
     7.      Fengjust Vestfjarðagöng viðurkennd lögleg miðað við kröfur EES-staðla í dag?
     8.      Verður forgangsröðun jarðganga endurskoðuð vegna eldsvoða í rútu utan við Vestfjarðagöng og horft til breikkunar samhliða á báðum einbreiðu leggjum Vestfjarðaganga?


Skriflegt svar óskast.