16.10.1979
Neðri deild: 2. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í B-deild Alþingistíðinda. (39)

Sætaskipun

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil að það komi fram í framhaldi af því sem ég sagði í gær, að ég tel ósk hæstv. forseta ekki óeðlilega og styð tillögu hans um óbreytta sætaskipan. Allt annað eru hártoganir eins og málin standa nú fyrir þinginu.