22.03.1982
Neðri deild: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3156 í B-deild Alþingistíðinda. (2756)

19. mál, söluskattur

Frsm. (Ingólfur Guðnason):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til breyt. á lögum nr. 10 frá 22. mars 1960, um söluskatt, með síðari breytingum. Fjh.- og viðskn. hefur haft þetta mál til umfjöllunar og mælir nefndin eindregið með því að það verði samþykkt eins og það barst frá Ed. Hafa allir nm. skrifað undir nál.