07.05.1982
Efri deild: 92. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4865 í B-deild Alþingistíðinda. (4652)

279. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Þetta mál kemur til kasta Alþingis öðru sinni áður en til ákvörðunar kemur. Það er ekki meinfýsi heldur uggur sem býður mér það í grun, að þá kunni mér að verða þeim mun léttara að segja nei sem mér er nú tregt að segja já.