06.12.1983
Sameinað þing: 29. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1456 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)

112. mál, nýting ríkisjarða í þágu aldraðra

Flm. (Helgi Seljan):

Herra forseti. Ég þakka þær undirtektir sem þessi till. hefur fengið við raunverulega 1. umr. sem hún hefur fengið að öðru leyti en því að þegar hún var flutt í fyrsta eða annað sinn þá kom einmitt hv. fyrrv. þm. Sighvatur Björgvinsson hér upp og minnti á að til væri önnur leið að nýta bújarðir, einmitt til orlofsbúða, þannig að oft kviknar ein hugmyndin af annarri, og sagðist í framhaldi af því vera að ráðgera að flytja till. um slíkt á Alþingi. Miðað við þær undirtektir sem þessi till. hefur nú fengið vonast ég til að hún eigi greiða leið gegnum þingið, þó seinna sé á ferðinni en till. hv. þm. Sighvats Björgvinssonar.