22.02.1984
Efri deild: 54. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3062 í B-deild Alþingistíðinda. (2666)
204. mál, Ljósmæðraskóli Íslands
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Mig langar til að gera athugasemdir við þetta frv., einkum við 4. gr. þess. Þar stendur, með leyfi forseta: „Ráðherra skipar skólastjóra og skal hann vera fæðingarlæknir eða ljósmóðir, sem einnig hefur lokið BS-prófi í hjúkrunarfræði.“
Ég kysi að þessi grein ætti ótvírætt aðeins við ljósmóður. Mér finnst það mjög eðlilegt að ljósmóðir sé skólastjóri Ljósmæðraskóla Íslands en ekki fæðingarlæknir. Nú veit ég að vísu að ekki munu vera margar ljósmæður hér á landi í dag sem hafa jafnframt lokið BS-prófi í hjúkrunarfræðum. En það er von á þó nokkrum bráðlega og í ljósi þess held ég að æskilegt væri að viðhalda þeirri skipan á skólastjórninni sem nú er enn um sinn, þangað til grundvöllur er fyrir því að ljósmæður með slíka menntun geti sótt í einhverjum mæli um þá stöðu sem hér um ræðir.
Einnig langar mig til að lýsa áhyggjum mínum yfir því hvernig sífellt þrengir að hefðbundnum kvennamenntastéttum. Þetta varðar bæði ljósmæður og hjúkrunarfræðinga. Það eru sífellt gerðar hærri prófkröfur og kröfur um lengra nám í stéttum sem konur hafa mikið sótt í, og eins og ég segi hef ég svolitlar áhyggjur af því. Hins vegar veit ég ekki, en það kemur væntanlega í ljós í nefnd, hversu nauðsynlegt það er að æskja þeirra skilyrða sem gert er ráð fyrir í þessu frv.
Ég ætla ekki að segja meira um þetta mál að sinni, en vildi aðeins að þessi atriði kæmu fram hér við 1. umr.