19.12.1984
Neðri deild: 33. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2218 í B-deild Alþingistíðinda. (1731)

134. mál, vöruhappdrætti Sambands íslenskra berklasjúklinga

Frsm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 379 um frv. til l. um breytingu á lögum nr. 18 22. apríl 1959, um vöruhappdrætti fyrir Samband ísl. berklasjúklinga.

Allshn. hefur fjallað um þetta frv. og það er skemmst frá því að segja að nefndin mælir með því að það verði samþykkt og rita allir nm. undir það álit.