10.10.1985
Sameinað þing: 1. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Forseti Íslands setur þingið

Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir):

Hinn 23. september 1985 var gefið út svofellt bréf:

„Handhafar valds forseta Íslands samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti sameinaðs Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt:

Vér höfum ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til fundar fimmtudaginn 10. október 1985. Um leið og vér birtum þetta er öllum sem setu eiga á Alþingi boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni sem hefst kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 23. september 1985.

Steingrímur Hermannsson.

Þorv. Garðar Kristjánsson.

Magnús Þ. Torfason.

Steingrímur Hermannsson.

Bréf handhafa valds forseta Íslands um að Alþingi skuli koma saman til fundar fimmtudaginn 10. október 1985.“

Samkvæmt bréfi því, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því að Alþingi Íslendinga er sett. Bið ég yður að rísa úr sætum og minnast ættjarðarinnar. [Þingheimur stóð upp og forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Þingmenn tóku undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.] Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi þar til kosning forseta sameinaðs Alþingis hefur farið fram og bið ég aldursforseta, Stefán Valgeirsson, 3. þm. Norðurl. e., að ganga til forsetastóls.