03.12.1985
Sameinað þing: 24. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1084 í B-deild Alþingistíðinda. (813)

137. mál, úrsögn Íslands úr alþjóðahvalveiðiráðinu

Forseti (Helgi Seljan):

Ég vil taka það fram í sambandi við form þessara fyrirspurnatíma að hér er eingöngu um það að ræða að viðkomandi geri stutta athugasemd. Að öðrum kosti fer svo að viðkomandi sem fara fram yfir þau tímamörk tala lengur en fyrirspyrjandi og það er ekki góð latína.