132. löggjafarþing — 102. fundur, 10. apr. 2006.
Opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.
731. mál
Frú forseti. Ég get vel trúað að hæstv. iðnaðarráðherra þyki erfitt að nálgast Sjálfstæðisflokkinn. Enda gerir hann það utan frá. Hann talar yfir hann. Hann ákveður á blaðamannafundi það sem við eigum að taka ákvörðun um. Það er kannski ekkert skrítið þó það sé erfitt að nálgast flokkinn.