133. löggjafarþing — 22. fundur, 7. nóv. 2006.
opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.
280. mál
Hæstv. forseti. Ég vil ekki fara að snúa út úr fyrir hv. þingmanni. Hann vísar í VII. hluta greinargerðar á bls.15. Ég endurtek að þar er bara verið að fjalla um þekkingarsetur á einstökum stöðum á landsbyggðinni en ekki verið að tala um aðalskrifstofu Byggðasjóðs eða Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.