133. löggjafarþing — 72. fundur, 15. feb. 2007.
samgönguáætlun fyrir árin 2007--2018.
575. mál
Hæstv. forseti. Ég tel alveg eðlilegt að málin verði rædd með þessum hætti. Yfir það var farið á fundi þingflokksformanna í gær og orðið við því í samkomulagi okkar þingflokksformanna. Ég held að það sé ástæða til að hefja þessa umræðu nú þegar með þeim hætti sem forseti lagði upp með þegar hún kynnti dagskrá þingsins í dag.