135. löggjafarþing — 74. fundur, 4. mars 2008.
tilkynning um dagskrá.
Forseti vill láta þess getið að um klukkan tvö í dag, að loknum umræðum um störf þingsins, fer fram utandagskrárumræða um stöðu efnahags-, atvinnu- og kjaramála. Málshefjandi er hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon. Hæstv. forsætisráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 3. mgr. 50. gr. þingskapa.