135. löggjafarþing — 111. fundur, 28. maí 2008.
Fiskræktarsjóður.
554. mál
Herra forseti. Við greiðum atkvæði um viðurlög við því ef menn hlíta ekki því að greiða gjald af veiðitekjum og öðrum slíku í Fiskræktarsjóð sem rennur, athyglisvert nokk, til einstaklinga og fyrirtækja þeirra. Viðurlögin eru allt að tveggja ára fangelsi.