135. löggjafarþing — 111. fundur, 28. maí 2008.
aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
539. mál
Frú forseti. Svona andsvör eru eflaust ekki hentug til að fá botn í slík ákvæði. En ég næ sem sagt ekki alveg fullkomlega þessum skilgreiningum. Hér er verið að setja ströng ákvæði eftir alþjóðasamningum þannig að ég hefði haldið að þetta ákvæði væri í raun óþarft.