135. löggjafarþing — 116. fundur,  2. sept. 2008.

framhaldsfundir Alþingis.

[13:32]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 2. september kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 15. ágúst 2008.

Ólafur Ragnar Grímsson.

_____________

Geir H. Haarde.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Ég býð hæstv. forseta, hv. alþingismenn og starfsmenn þingsins alla velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.