136. löggjafarþing — 51. fundur,  11. des. 2008.

stimpilgjald.

213. mál
[16:27]
Horfa

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 36/1978, um stimpilgjald, með síðari breytingum.

Frumvarp þetta er lagt fram í kjölfar þess að 1. júlí 2008 sendi umboðsmaður Alþingis frá sér álit í máli nr. 4712/2006. Til þess máls var stofnað með kvörtun til umboðsmanns vegna synjunar fjármálaráðuneytisins á kröfu um endurgreiðslu stimpilgjalds af þinglýstu endurriti fjárnámsgerðar í fasteign. Í álitinu kemst umboðsmaður að þeirri niðurstöðu að álagning stimpilgjalds á þinglýst endurrit úr gerðabók um aðfararbeiðni og framkvæmd fjárnáms eigi sér ekki fullnægjandi lagastoð.

Innheimta stimpilgjalds fyrir fjárnámsendurrit, endurrit úr gerðabók um kyrrsetningu og um löggeymslu hefur tíðkast um langt skeið á grundvelli ákvæðis í 1. mgr. 24. gr. laga um stimpilgjald, nr. 36/1978, og er gjaldið 15 kr. fyrir hvert byrjað þúsund af fjárhæð skuldar. Fjármálaráðuneytið hefur litið svo á að fyrirmæli 1. mgr. 5. gr. laganna, um að stimpilskylda skjals réðist af þeim réttindum sem það veitti, en ekki af nafni þess eða formi, fæli í sér að krafa sem tryggð væri með fjárnámi, kyrrsetningu eða löggeymslu yrði samkvæmt efni sínu að fullu lögð að jöfnu við tryggingarbréf skv. 1. mgr. 24. gr. laganna.

Vegna framkomins álits umboðsmanns Alþingis þykir rétt að taka af öll tvímæli um heimildir í lögum til innheimtu stimpilgjalds af fjárnámsendurritum, endurritum kyrrsetningargerða og löggeymslu. Með frumvarpi þessu, sem felur í sér breytingar að formi til og leiðir ekki til aukinnar gjaldtöku, er nýjum málslið bætt við 1. mgr. 24. gr. um stimpilskyldu aðfarargerða, kyrrsetningar og löggeymslu og er með því verið að skjóta styrkari lagastoð undir heimild til innheimtu stimpilgjalds á endurrit úr gerðabók er varða þessa gjörninga.

Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og skattanefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari umræðu.