136. löggjafarþing — 72. fundur,  26. jan. 2009.

Tilkynning frá ríkisstjórninni.

[15:04]
Horfa

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Hæstv. forseti. Ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar er lokið. Ég mun ganga á fund forseta Íslands í dag kl. 16 og biðjast lausnar fyrir mig og ráðuneyti mitt.

Rétt er að gera þingheimi grein fyrir því að ekki er um málefnalegan ágreining að ræða milli flokkanna heldur hefur krafa Samfylkingarinnar um að taka við forsætisráðuneytinu valdið trúnaðarbresti sem ekki er yfirstíganlegur. Öllum má vera ljóst að krafa um að stjórnarforustan flytjist á milli flokka í ríkisstjórn getur ekki leitt til annars en stjórnarslita.

Ég vil þakka hæstv. utanríkisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, persónulega fyrir það samstarf sem við höfum átt sem formenn stjórnarflokkanna. Þar hefur engan skugga borið á. Ríkisstjórnin hefur unnið mikið verk við ótrúlega erfiðar aðstæður síðustu vikur og mánuði. Það gengur kraftaverki næst að hér á landi skuli vera starfhæft bankakerfi eftir hrun fjármálakerfisins í byrjun október. Vel hefur miðað í undirbúningi endurreisnar og uppbyggingar í samfélaginu. Um það bil 100 atriði, lagabreytingar, reglugerðarbreytingar og stjórnvaldsákvarðanir, hafa komið til framkvæmda eða verið ákveðnar á þessum tíma. Það er ekki hægt að gera kraftaverk á hverjum einasta degi, allir sjá það, en stundum stendur upp á okkur krafa um að gera einmitt það.

Því miður hefur það nú gerst sem ég óttaðist allan tímann frá því að bankahrunið varð í byrjun október að stjórnarkreppa mundi bætast ofan á efnahagskreppuna. Ég skora á þingmenn alla að rísa nú undir þeirri ábyrgð sem þeim hefur verið falin af þjóðinni og búa svo um hnútana að þær viðamiklu björgunaraðgerðir sem nú eru í gangi fari ekki út um þúfur í stjórnleysi og upplausn. Ekkert okkar er mikilvægara en hagur þjóðarinnar og við verðum öll að ganga í takt næstu vikur og mánuði þar til kjósendur velja sér nýja fulltrúa. Þetta er verkefni sem nú blasir við okkur á hinu háa Alþingi og við sjálfstæðismenn munum að sjálfsögðu ekki hlaupast undan þeirri ábyrgð.