137. löggjafarþing — 48. fundur, 10. ág. 2009.
3. fsp.
Hæstv. forseti. Ég held að það sé alveg skýrt og klárt að norrænu lánin eru ekki tengd Icesave-samningnum að neinu leyti öðru en því að norrænu lánin eru liður í þeirri áætlun sem við höfum gert með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Það er ekkert annað sem þar býr að baki að mínu viti. (BÁ: En skýringar á ...)