138. löggjafarþing — 30. fundur, 24. nóv. 2009.
viðvera ráðherra.
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir upplýsingar sem hér hafa komið fram en ég velti fyrir mér hvort hæstv. forseti geti verið örlítið nákvæmari í sambandi við ferðir hæstv. forsætisráðherra þar sem ég er næstur á mælendaskrá og hef í hyggju að beina orðum mínum til forsætisráðherra í hluta ræðu minnar. Það væri gott ef hæstv. forseti gæti aðeins upplýst nánar um hvenær von er á hæstv. forsætisráðherra.