138. löggjafarþing — 65. fundur, 30. des. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
76. mál
Frú forseti. Þjóðin er ekki fífl og hún á betra skilið en svona meðferð. Ef við ætlum að leggja þessar drápsklyfjar á herðar almennings finnst mér réttast að sá hinn sami almenningur fái að greiða atkvæði um hvort hann sé tilbúinn að axla þær ósanngjörnu skuldabyrðar. Ég segi já.